LOGOS Reykjavík

Tímarnir hafa breyst frá því Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands, setti á fót lögmannskrifstofu árið 1907. Eftir standa hinsvegar þau góðu gildi sem Sveinn byggði sína velgengni á. Í nútíma viðskiptaumhverfi eru það heiðarleiki, fagmennska og reynsla sem LOGOS hefur að leiðarljósi, sem gerir fyrirtækið að bæði leiðandi, sem og umsvifamestu lögmannsstofu á Íslandi.

Starfssvið

Starfsemi LOGOS greinist í þrjár þjónustulínur í takt við þá sérhæfingu sem gagnast viðskiptalífinu best og endurspeglar um leið allar hliðar viðskiptalögfræði. Þau eru fyrirtækjalína, almenn lína og málflutningslína.

Lögmenn okkar hafa mikla og fjölbreytta reynslu vegna vinnu fyrir stóran hóp viðskiptavina, allt frá stærstu og framsæknustu fyrirtækjum landsins til margra af okkar fremstu tónlistarmönnum.

Tækifæri

Hjá LOGOS hafa metnaðarfullir einstaklingar tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefnum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki. Þótt LOGOS sé stærsta lögmannsstofa landsins þá er hún enn í örum vexti og bætast því nokkrir nýir liðsmenn í hópinn á hverju ári.