
Fagmannleg lögmannsþjónusta er snar þáttur í öllum viðskiptum. Lögmenn LOGOS hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf og lausn verkefna á sviði verslunar og viðskipta. Stofan hefur t.a.m. verið leiðandi í ráðgjöf á sviði alþjóðaviðskipta í mörg ár, ekki síst fyrir tilstilli starfsstöðva í London og Kaupmannahöfn.
Meðal innlendra verkefna má nefna sígild úrlausnarefni á borð við samningagerð og málflutning fyrir dómstólum. LOGOS hefur þó einnig sinnt sérhæfðari ráðgjöf, til dæmis á sviði samkeppnisréttar um fyrirkomulag rafrænna viðskipta og atriði sem varða persónuvernd í viðskiptum.
Helstu eigendur:
Bjarnfreður Ólafsson
Guðmundur J. Oddsson
Heiðar Ásberg Atlason
Jón Elvar Guðmundsson
Pétur Guðmundarson
Þórólfur Jónsson