Verktakastarfsemi

Verktakastarfsemi er ein af stærri atvinnugreinum landsins. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi og skiptir góður undirbúningur mjög miklu máli til þess að sem bestur árangur náist í sérhverju verki. Umgjörð verktakastarfseminnar þarf að vera traust og framkvæmd hnökralaust, til þess að sem bestur árangur náist. Brýnt er að allir samningar, smáir sem stórir, séu vel úr garði gerðir til að fyrirbyggja ágreining og til þess að verk geti náð fram að ganga án vandræða.

Lögmenn (sérfræðingar) LOGOS hafa mikla reynslu á sviði verktakaréttar. Þeir veita bæði verktökum og verkkaupum ráðgjöf og hafa umfangsmikla reynslu af gerð verksamninga af ýmsu tagi, ekki síst vegna stórframkvæmda. Lögmenn stofunnar hafa reynslu af gerð hefðbundinna íslenskra verksamninga fyrir smærri og stærri verk, sem og gerð umfangsmeiri verksamninga á grundvelli alþjóðlegra verksamningsstaðla eins og FIDIC. LOGOS veitir einnig ráðgjöf á sviði útboðsréttar m.a. við val útboðsaðferða, gerð skilmála og vegna kærumála í tengslum við útboð, svo eitthvað sé nefnt.

Helstu eigendur:
Erlendur Gíslason
Hjördís Halldórsdóttir
Othar Örn Petersen