Útflutningsgreinar

Í útflutningi er mikilvægt að búa vel um hnútana hvað varðar alla samningsgerð, bæði gagnvart kaupendum en ekki síður flutningsaðilum og öðrum sem að ferlinu koma. LOGOS hefur unnið með mörgum af helstu útflutningsfyrirtækjum þjóðarinnar um áratugaskeið og varða verkefnin allt frá útflutningi hráefna til fullkomins tækjabúnaðar og hugverka. Þá hefur viðamikil sérþekking lögmanna LOGOS á sviði fjármagnsflutninga og alþjóðlegs skattaréttar reynst mörgum útflytjendum vel gegnum tíðina.

Loks ber að nefna að öll alþjóðaviðskipti geta kallað á samstarf við erlenda lögmen. Í þeim efnum hefur LOGOS algjöra sérstöðu hérlendis enda eru reknar starfsstöðvar bæði í London og Kaupmannahöfn. Þar að auki geta viðskiptavinir LOGOS gengið að góðri lögmannsþjónustu vísri í um 200 erlendum þjóðríkjum gegnum þátttöku LOGOS í Lex Mundi, alþjóðasamtökum lögmannsstofa.

Helstu eigendur:
Árni Vilhjálmsson
Bjarnfreður Ólafsson
Hjördís Halldórsdóttir
Jón Elvar Guðmundsson
Ragnar Tómas Árnason