
Afrakstur orkufrekst iðnaðar er orðin ein helsta útflutningsvara Íslands. Að margra mati gæti þessi grein orðið enn meiri lyftistöng fyrir þjóðarbúið og gegnt lykilhlutverki við að færa efnahagsástandið hérlendis til betri vegar. Að mörgu er þó að hyggja ef vel á að takast til og árangur ræðst af samspili margra veigamikilla þátta; orkusamninga, vinnu við skipulag og byggingu verksmiðja og samskipti við hið opinbera, svo eitthvað sé nefnt.
Sérfræðingar LOGOS hafa mikla og langa reynslu af ráðgjöf við gerð samninga um magnkaup raforku, útboðsvinnu fyrir stærri framkvæmdir og ýmiss konar málflutningi á sviði orkufreks iðnaðar. Innan raða LOGOS er enn fremur að finna mikla sérþekkingu á hinum nýju íslensku raforkulögum og hafa lögmenn stofunnar veitt margháttaða ráðgjöf um stjórnsýslu og skipulagsmál.
Helstu eigendur:
Árni Vilhjálmsson
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson