Líftækni

SímtalFramfarir í líftækni byggja á hugviti, umfangsmiklum rannsóknum, þróun og ítarlegum prófunum. Þetta ferli er gríðarlega kostnaðarsamt en getur einnig haft drjúgan fjárhagslegan ávinning í för með sér ef vel tekst til. Ísland býður að mörgu leyti upp á ákjósanleg skilyrði fyrir starfsemi á sviði líftækni, til dæmis í lyfja-, matvæla- og snyrtivöruframleiðslu en fagleg ráðgjöf varðandi þætti sem varða lög og reglugerðir skiptir æ meira máli.

Sérfræðingar LOGOS hafa veitt fyrirtækjum á sviði líftækni margháttaða ráðgjöf, bæði hvað varðar ýmiss konar leyfisumsóknir, flókna sölusamninga og skráningu einkaleyfa. Slíkt ferli getur verið býsna flókið í framkvæmd, til dæmis hvað varðar hagnýtingu lífvera, á borð við örverur eða erfðabreyttar afurðir úr ríki náttúrunnar. Einnig skiptir máli að allir samningar, bæði við starfsfólk, birgja og kaupendur vöru og þjónustu, séu vandlega úr garði gerðir og styðji við vöxt og viðgang hvers verkefnis fyrir sig.

Helstu eigendur:
Árni Vilhjálmsson
Hjördís Halldórsdóttir
Ragnar Tómas Árnason