
Það er kunnara en að frá þurfi að segja að Íslendingar eru fljótir til að meðtaka nýja tækni. Hjá fáum þjóðum er jafn hátt hlutfall nettengdra heimila og notkun farsíma slær öll met. Á þessu sviði leynast því mörg tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki sem er reiðubúið til að hætta tíma og fjármunum í rannsóknir og þróun. LOGOS hefur liðsinnt fjölda viðskiptavina sem starfa á sviði hátækni; allt frá frumkvöðlum á sprotastigi til fullþroska fyrirtækja í samkeppnisrekstri.
Lögmenn LOGOS búa yfir drjúgri reynslu og víðtækri menntun á sviði hugverkaréttar, fjarskiptaréttar og upplýsingatækni. Sem dæmi um verkefni sérfræðinga LOGOS má nefna mál sem varða persónuvernd, til dæmis í fjarskiptum og ýmis málum sem tengjast rafrænum viðskiptum.
LOGOS er meðeigandi að
Árnason Faktor ráðgjafafyrirtæki um verndun á hugverkaréttindum. Þau tengsl tryggja viðskiptavinum LOGOS mjög greiðan aðgang að sérfræðilegri og hagnýtri ráðgjöf vegna umsókna um verndun hugverkaréttinda á borð við vörumerki, einkaleyfi og hönnun.
Helstu eigendur:
Árni Vilhjálmsson
Hjördís Halldórsdóttir
Ragnar Tómas Árnason