Flugsamgöngur og siglingar

Vegna legu landsins og íslenskra atvinnuhátta hafa vöru- og fólksflutningar verið mikilvæg grein á Íslandi frá alda öðli, bæði til og frá útlöndum og innanlands. Grundvallarforsenda flutninga er einföld - að sendandi geti treyst því að hver sending skili sér á réttum tíma í fullkomnu ástandi á áfangastað. Útfærslan er þó fjölbreytileg: skip, bílar eða flugvélar eru notaðar til flutninga og farmurinn getur verið fólk, búslóðir, verslunarvörur og hráefni.

Sérfræðingar LOGOS hafa margvíslega reynslu af öllum hliðum flutningastarfsemi og hafa unnið að smáum sem stórum verkefnum; allt frá samningum um leigu og skráningu á skipum og flugvélum til ráðgjafar við gerð ýmiss konar farmsamninga sem nauðsynlegir eru til að ábyrgð á farmi sé skýr, hvort sem flutt er með bíl, skipi eða flugvél. Sérfræðingar LOGOS hafa enn fremur flutt fjölmörg dómsmál þar sem reynir á reglur sjó- og flutningaréttar, einkum í tengslum við farmtjón og björgun.

Helstu eigendur:
Erlendur Gíslason
Einar Baldvin Axelsson
Othar Örn Petersen