Fasteignastarfsemi

Á umbrotatímum skapast ávallt tækifæri fyrir fjárfesta og það gildir að sjálfsögðu einnig um fasteignamarkaðinn. Ef rétt er á málum haldið eru fasteignir einhver tryggasta aðferðin til að varðveita verðmæti til lengri tíma og geta skapað traustar tekjur. Á þroskuðum markaði geta vel skipulögð fasteignaþróunarverkefni haft fjárhagslegan ávinning í för með sér, sérstaklega ef vandað er til verka frá upphafi.
LOGOS hefur gegnum tíðina aðstoðað fjölda umbjóðenda í málum tengdum fasteignum og jörðum, bæði hér heima og erlendis. Þar á meðal eru mál vegna ágreinings um kaupsamninga eða galla sem koma upp, ráðgjöf um túlkun og beitingu jarðalaga og samningsbundinna forkaupsréttarákvæða, auk þeirrar sérhæfðu vinnu sem skipulagsreglur dagsins í dag kalla á.
Helstu eigendur:
Erlendur Gíslason
Jón Elvar Guðmundsson
Pétur Guðmundarson
Ragnar Tómas Árnason