Banka- og fjármálastarfsemi

Starfsemi á sviði banka- og fjármálastarfsemi hefur tekið gríðarlegum breytingum á undanförnum árum, sem hafa leitt í ljós mikilvægi þess að vel sé unnið að lagalegum undirstöðum allra sviða starfseminnar. Einnig er ljóst að á næstu árum mun reyna á úrlausn fjölda flókinna mála sem varða hrun íslenska fjármálakerfisins fyrir dómstólum.

Á tímum sem þessum skiptir miklu máli að vanda til verka og íhuga hvert skref sem stigið er. LOGOS veitir ráðgjöf sem byggir á víðtækri sérfræðiþekkingu á öllum sviðum fjármálastarfsemi. Lögmenn stofunnar geta einnig reynst góður liðsauki á tímum þegar íslenskar fjármálastofnanir glíma við stór verkefni á sviði fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum og leita leiða til að standa vörð um verðmæti eignasafna sinna.

Helstu eigendur:
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson
Pétur Guðmundarson
Þórólfur Jónsson