Afþreyingar- og skemmtanastarfsemi

RúlluborðÍslensk tónlist og kvikmyndagerð auk smíði á hugbúnaði og tölvuleikjum eru dæmi um íslenska vaxtarbrodda á sviði afþreyingar- og skemmtana. Slík verkefni eiga það sameiginlegt að miklu er kostað til þróunar og undirbúningsvinnu. Að því loknu tekur við viðkvæmt stig þegar þess er freistað að koma viðkomandi verkefni á framleiðslu- og sölustig.

Til að uppskeran verði eins og til er sáð þarf að tryggja það að haldið sé þétt utan um öll verðmæti sem skapast á leiðinni, svo sem hugverk, vörumerki og sérþekkingu. Sérfræðingar LOGOS eru öllum hnútum kunnugir á þessum sviðum og öðrum sem tengjast nýsköpun af öllu tagi, sem og samningagerð um verndun hugverkaréttar, framsal réttinda gegn greiðslu, t.d. við notkun tónlistar eða bókmenntaverka í kvikmyndum, svo eitthvað sé nefnt.

Helstu eigendur:
Hjördís Halldórsdóttir
Ragnar Tómas Árnason