Fréttir

Real Estate 2012

5.3.2012

Grein eftir Erlend Gíslason hrl. Greinin birtist í The International Comparative Guide to: Real Estate 2012, útgefið af Global Legal Group Ltd., London, www.iclg.co.uk.

Smellið hér til að lesa.

Merger Control 2012

5.12.2011

Grein eftir Helgu Melkorku Óttarsdóttur hrl., og Halldór Brynjar Halldórsson hdl., birt í The International Comparative Guide to: Corporate Tax 2012, útgefið af Global Legal Group Ltd., London, www.iclg.co.uk.

Smellið til að lesa.

IFLR1000 metur LOGOS í fremstu röð

30.11.2011

IFLR1000 hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi. Voru ýmsir lögmenn hjá LOGOS einnig taldir skara framúr á sínum sviðum.

Viðurkenningin endurspeglar álit viðskiptavina og keppinauta LOGOS, en IFLR1000 byggir mat sitt á rannsókn sem er unnin út frá víðtæku viðtalsferli.

Sjá nánar hér

 

IFLR1000

VR fyrirmyndarfyrirtæki

27.6.2011

VR hefur frá árinu 2005 heiðrað sérstaklega fyrirtækin í tuttugu efstu sætunum, í "Fyrirtæki ársins", og veitt þeim viðurkenningar fyrir frábæran árangur.

LOGOS hefur frá árinu 2008 verið veitt viðurkenningin "Fyrirmyndarfyrirtæki"


LOGOS styrkurinn

23.6.2011

LOGOS styrkurinn fyrir árið 2011 var að þessu sinni veittur Höllu Björgvinsdóttur, nemanda í HR og Friðriki Árna Friðrikssyni Hirst, nemanda í HÍ. Styrkurinn er veittur fyrir framúrskarandi árangur í laganámi.

Við óskum Höllu og Friðriki innilega til hamingju með glæsilegan árangur.

Chambers Global metur LOGOS

28.3.2011
Chambers Global hefur metið LOGOS í fremstu röð lögfræðiráðgjafa á Íslandi árið 2011.

Chambers Global meta framúrskarandi lögfræðinga og lögmannsstofur í yfir 180 lögsögum og beina sjónum einkum og sér í lagi á þá lögmenn er starfa á alþjóðavettvangi.

Sjá nánar hér.

Óttar Pálsson hrl. gerist meðeigandi að LOGOS lögmannsþjónustu

21.3.2011
Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður, hefur gengið til liðs við LOGOS lögmannsþjónustu og verður einn eigenda félagsins. Óttar mun veita viðskiptavinum ráðgjöf um löggjöf á fjármálamarkaði, fjárfestingar og fjármögnun fyrirtækja auk þess að sinna málflutningi.

Óttar gegndi starfi forstjóra Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (nú ALMC hf.) frá mars 2009 til loka síðasta árs og leiddi á þeim tíma fjárhagslega og rekstrarlega endurskipulagningu félagsins. Óttar tók sæti í stjórn ALMC hf. í september 2010 og mun sitja áfram í stjórninni samhliða lögmennsku.

Óttar var framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Straums á tímabilinu 2006 til 2009. Þar áður starfaði hann hjá A&P lögmönnum og LOGOS lögmannsþjónustu, sem meðeigandi á árunum 2002 til 2006.

Óttar lauk embættisprófi í lögfræði frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 1997, stundaði nám við Kaþólska háskólann í Löven, Belgíu, árið 1996 og lauk meistaragráðu (LL.M.) í félaga-, banka- og verðbréfarétti árið 2001 frá University College London.  Óttar varð hæstaréttarlögmaður árið 2006.

LOGOS aðstoðar við 1,6 miljarða evra fjárhagslega endurskipulagningu Hf. Eimskipafélags Íslands

2.9.2009
Á kröfuhafafundi í Hf. Eimskipafélagi Íslands þann 14. ágúst var nauðasamningsfrumvarp félagsins samþykkt samhljóða af öllum kröfuhöfum félagsins. Í dag þann 28. ágúst var háð þinghald í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem nauðasamningurinn var samþykktur.Frá því í október 2008 hefur hópur lögmanna LOGOS undir forystu Ólafs Arnbjarnar Sigurðssonar, Ólafs Eiríkssonar og Péturs Guðmundarsonar verið Eimskipafélaginu innan handar við undirbúning fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins.

Lesa alla greinina.

Hádegisverðarfundur 7. september 2009

27.8.2009
Some Thoughts on the Causes of the 2008 Financial Crisis
(From the Perspective of a UK Investment Banker Who Saw it Unfold)

Fundurinn hefst með hádegisverði á Nordica Hóteli, annari hæð, kl. 12:00 mánudaginn 7. september en áætlað er að honum ljúki kl. 13:30

Jas Bains will give a short presentation of the underlying causes of the 2008 Financial Crisis seen from his view as a banker at Barclays Capital in London. Barclays Capital was and remains a global market leader in structured products.

Jas Bains is a Solicitor in England and Wales at LOGOS Legal Services in London. Jas is a Cambridge University graduate and trained and qualified as a solicitor at Freshfields Bruckhaus Deringer in London. After 4 years at Freshfields, Jas joined ING Bank, London and later Barclays Capital, London where he worked in the Structured Capital Markets team. Jas joined LOGOS in London early 2009 and leads the firm’s UK qualified team on Banking and Finance Law as well as Restructuring.

Fréttabréf LOGOS varðandi íslensku neyðarlögin

3.2.2009
Fréttabréf LOGOS, 3. febrúar 2009, varðandi íslensku neyðarlögin.

Smellið hér til að lesa.

LOGOS kostar lektorsstöðu í tilefni 100 ára afmælis

15.2.2007
LOGOS lögmannsþjónusta kostar stöðu lektors við lagadeild Háskóla Íslands næstu þrjú árin. Kristín Ingólfsdóttir rektor og Gunnar Sturluson, framkvæmdastjóri LOGOS, undirrituðu samning þessa efnis í dag. Kostnaður LOGOS vegna þessa nemur um 15 milljónum króna en markmiðið er að efla kennslu og rannsóknir við lagadeild Háskóla Íslands á sviði stjórn­sýslu­réttar með áherslu á reglur um eftirlit stjórn­valda með starfsemi á fjármála­markaði.

Breytingar á eigendahópi LOGOS

5.1.2007
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson hdl. gerðist meðeigandi að LOGOS sf.  þann 1. janúar 2007. Ólafur Arinbjörn hefur starfað hjá LOGOS frá árinu 2003.
                                                          

Jakob R. Möller hrl. gekk úr sameignarfélaginu LOGOS sf. á sama tíma.  Jakob mun starfa áfram að tilteknum verkefnum, sem hann hefur þegar tekið að sér, þar á meðal dómsmálum sem honum hafa verið falin.  Jakob mun jafnframt verða LOGOS til ráðgjafar í málefnum, sem varða LOGOS og viðskiptamenn félagsins.  Málflutningsréttindi Jakobs eru óhögguð og lögmannsverkefnum sínum mun hann sinna undir merkjum LOGOS.  Sjálfur orðar Jakob það svo, að hann "sé byrjaður að hætta störfum vegna aldurs"